Þvottavél, Siemens, iQ700
Glæsilegasta Siemens þvottavélin okkar. Þessi hefur allt það sem gott heimili þarf. Sjálfvirk þvottakerfi með sjálfvirkri skömmtun á fljótandi þvottaefni og sex blettakerfi.
Neysla og árangur:
Tekur mest 11 kg.
Orkuflokkur A.
Raforkunotkun: 42 kwst.
Vatnsnotkun: 44 lítrar.
Vinduhraði: 400 til 1600 sn./mín.
Hljóð við vindingu: 72 dB.
Þvottakerfi og sérkerfi:
Þvottakerfi: Bómull, straufrítt, viðkvæmur þvottur, ull/handþvottur.
„smartFinish“: Dregur úr krumpum, sérstaklega ætlað fyrir jakkaföt, skyrtur og blússur.
Sérkerfi: Sjálfvirkt kerfi, þeytivinding/dæling, 59 mín. kerfi, blandaður þvottur, skolun, stutt kerfi 15 mín./30 mín.
Kerfi í gegnum app: Sjálfvirkt vægt, handklæði, tromluhreinsun, skyrtur, gallabuxur/dökkur þvottur, útifatnaður og kerfi sem minnkar frárennsli örplasts.
Blettakerfi fyrir sex ólíka bletti. Í Home Connect appinu eru 10 blettakerfi til viðbótar.
„Hygine“: Hentar vel fyrir ofnæmissjúklinga og þar sem þörf eru á miklu hreinlæti. Hitastig helst stöðugt allan þvottatímann.
„Added Steam“ getur minnkað krumpur um 40% á meðan þvottakerfi stendur yfir.
Snertihnappar.
Hönnun og þægindi:
Home Connect appið: WiFi.
i-DOS: Sjálfvirk skömmtun fyrir fljótandi þvottaefni.
XXL tromla: 70 lítra. Lúguop, 32 sm með 188° opnun.
Glæsilegt hallandi stjórnborð sem auðveldar notkun. Stór LED-skjár.
LED-lýsingin inni í tromlu.
„AntiVibration Design“: Hönnun sem tryggir stöðugleika og minna hljóð.
„waveDrum“: Fer betur með þvottinn.
Skönnun á þvottaefni: Strikamerki á fljótandi þvottaefni og mýkingarefni eru skönnuð. Vélin/appið þekkir hvaða tegund þvottaefnis eða mýkingarefnis þú ert með og þannig hjálpað til við rétta skömmtun.
Tækni og öryggi:
Hljóðlátur, kolalaus mótor með 10 ára ábyrgð.
waterPerfectPLUS: Umhverfisvænt kerfi, sem notar minna vatn en venjulega.
Flæðivörn, AquaStop.
Barnalæsing.
Mál: 845 x 598 x 590 mm.
Hönnunin á hliðum vélarinnar er ekki einungis flott heldur tryggir hún einnig meiri stöðugleika og minni hristing en áður. Lagt hefur verið mikið kapp á að lágmarka hávaða frá vélinni og þeytivindingin hefur aldrei verið hljóðlátari.
„aquaStop“-flæðivörn.
aquaStop flæðivörnin samanstendur af sérstakri inntaksslöngu með tveimur veggjum, öryggisloka og vatnsskynjara í botni vélarinnar sem nemur ef einhver leki á sér stað.
Blettakerfi fyrir fjölda tegunda bletta (t.d. kaffiblett, blóðblett, rauðvínsblett o.s.frv.).
Kerfið virkar á fjölda tegunda bletta án þess að þurfa að nota blettahreinsiefni. Jafnvel þó að það sé rauðvín á hvítum bol eða grasblettir á buxum barnanna mun kerfið velja rétt hitastig, hraða trommunnar og hversu lengi þvotturinn á að liggja í bleyti og blettirnir hverfa sporlaust.
Þvottavélin er knúin áfram af byltingarkenndum iQdrive-mótor sem er hljóðlátur, hraður og skilvirkur. iQdrive-mótorinn notar núningsfrían segulmótor sem minnkar orkunotkun. Kolalaus og með 10 ára ábyrgð.
Þvottakerfi sem er sérstaklega þróað fyrir vatnsheldan útifatnað. Vægur þvottur sem ver viðkvæmt og lagskipt efnið sem hann er gerður úr. Hiti og vinding er þannig háttað að þvotturinn fari sem best með fatnaðinn.
Ef þurr þvottur er krumpaður er þvottavélakerfið smartFinish rétta svarið. Mild gufa dregur úr krumpum og því fer minni tími í straujun. smartFinish sér um að eyða miklum krumpum verulega á innan við tuttugu mínútum. Það með er komið nýtt hjálpartól í baráttuna við krumpurnar.
„varioSpeed“: Hægt að stytta tímann á þvottakerfum um allt að 65% án þess að það komi niður á þvottahæfni.
„waterPerfect Plus”: Umhverfisvænt kerfi, sem notar minna vatn með magnskynjun og án þess að það komi niður á þvottahæfni.
Háþróaðir skynjarar kerfisins veita hámarks skilvirka vatnsnotkun. Skynjararnir lesa ekki aðeins gerð taus heldur einnig magn þess. Út frá þessum þáttum er nauðsynlegt magn af vatni ákvarðað, sjálfkrafa og nákvæmlega. waterPerfect Plus gefur alltaf fullkomna niðurstöðu í þvotti með bestu vatnsnotkun.

