Þvottavél með þurrkara, Bosch, Series 8
Neysla og árangur:
Tekur mest 10,5 kg (þvottur) og 6 kg (þvottur og þurrkun).
Orkuflokkur A (þvottur), orkuflokkur D (þvottur og þurrkun).
Raforkunotkun: 52 kwst. (þvottur), 305 kwst. (þvottur og þurrkun).
Vatnsnotkun: 51 lítrar (þvottur), 75 lítrar (þvottur og þurrkun).
Hámarksvinduhraði 1400 sn./mín.
Hljóðlátur, kolalaus mótor („EcoSilence Drive“) með 10 ára ábyrgð.
Hljóð við vindingu: 70 dB (A) re 1 pW.
XXL tromla: 65 lítra.
Þvottakerfi og sérkerfi:
Þvottakerfi: Bómull, straufrítt, viðkvæmur þvottur og ull.
Sérkerfi (þvottur): Mjög stutt kerfi 15 mín., blandaður þvottur, íþróttafatnaður, skolun, þeytivinding/dæling.
Þurrkunarkerfi: Bómull og straufrítt.
Sérkerfi (þurrkun): Uppfrískun, kraftþurrkun og þvottur og þurrkun 45 mín.
SpeedPerfect: Hægt að stytta tímann á þvottakerfum.
AutoDry: Rafrænn rakaskynjari.
Tímastillt kerfi. Þurrkunarkerfi fyrir flest þvottakerfi.
Hönnun og þægindi:
Stór LED-skjár.
„VarioDrum“-tromla: Bylgjulaga tromla.
ActiveWater Plus: Skynjari sem skynjar vatnsmagn eftir þvottamagni og gerð þvottar.
Mál (h x b x d): 84,8 x 59,8 x 62,2 sm.
ActiveWater Plus skynjar vatnsmagn eftir þvottamagni og gerð þvottar.
ActiveWater Plus tæknin tryggir að fötin þín séu alveg hrein, á meðan þú notar ekki meira vatn en nauðsynlegt er fyrir hvern þvott, þar með talin lítil þvottur. Innbyggðir skynjarar skynja magn þvottarins og stilla vatnsnotkunina sjálfkrafa. Niðurstaðan eru hrein föt og minni sóun á vatni.
Hönnunin á hliðum vélarinnar er ekki einungis flott heldur tryggir hún einnig meiri stöðugleika og minni hristing en áður. Lagt hefur verið mikið kapp á að lágmarka hávaða frá vélinni og þeytivindingin hefur aldrei verið hljóðlátari.
„AquaStop“-flæðivörn.
AquaStop flæðivörnin samanstendur af sérstakri inntaksslöngu með tveimur veggjum, öryggisloka og vatnsskynjara í botni vélarinnar sem nemur ef einhver leki á sér stað.
Blettakerfi fyrir fjölda tegunda bletta (t.d. kaffiblett, blóðblett, rauðvínsblett o.s.frv.).
Kerfið virkar á fjölda tegunda bletta án þess að þurfa að nota blettahreinsiefni. Jafnvel þó að það sé rauðvín á hvítum bol eða grasblettir á buxum barnanna mun kerfið velja rétt hitastig, hraða trommunnar og hversu lengi þvotturinn á að liggja í bleyti og blettirnir hverfa sporlaust.
Fyrsta innbyggða skömmtunarkerfið frá Bosch metur nákvæmlega hversu mikið af fljótandi þvottaefni þarf fyrir hvern þvott. Kerfið metur magnið með tilliti til ólíkra þátta, m.a. áferð og magns þvottarins, og notar efnið til hinsta dropa. Mjög mikilvægt er að þvottaefni sé skammtað rétt því að röng skömmtun getur valdið því að þvottur þvoist illa eða skemmist. Einnig er umhverfisvænna að nota hæfilegt magn þvottaefnis.
Fullkominn þvottur á allt að 65% skemmri tíma.
Hægt er að stytta tímann eða spara orku á þvottakerfum án þess að það komi niður á þvottahæfni. SpeedPerfect tímastytting virkar á flest öll kerfi vélarinnar.