Kæli- og frystiskápur, Siemens, iQ300
Neysla og afköst:
Orkuflokkur C.
Raforkunotkun á ári: 159 kWst.
Ein pressa, tvö kælikerfi.
Hönnun og þægindi
Framhlið úr stáli, hliðar í perlu gráum lit.
Rafeindastýrð hitastilling, sjá má stillingar á stafrænum skjá.
Griprauf.
LED-lýsing í kælirými með „softStart“.
Kælir:
Nýtanlegt rými: 218 lítrar.
Hraðkæling.
Fjórar hillur úr öryggisgleri þarf af tvær færanlegar.
„hyperFresh“: skúffa fyrir grænmeti og ávexti.
„hyperFresh -0°-“: köld skúffa sem hentar fyrir kjöt og fisk, sem eykur endingartíma matsins.
Frystir:
Fjögurra stjarna frystihólf (frost -18° C eða meira): 103 lítra.
Frystigeta: 9,5 kg/24 klst.
Geymslutími við straumrof: 14 klst.
Hraðfrysting.
„noFrost“-tækni: Affrysting óþörf.
Þrjár gegnsæjar frystiskúffur.
Tæknileg atriði:
Breytileg hurðaropnun.
Stillifætur að framan, hjól að aftan.
Hljóð: 35 dB (re 1 pW).
Mál (h x b x d): 186 x 60 x 66 sm.
noFrost-tæknin gerir affrystingu óþarfa.
Rakinn er leiddur út úr frystinum sem leiðir til þess að loftið í honum verður þurrt. Þetta kemur í veg fyrir að ís og klaki myndist innan í rýminu og sest á matinn. Þess vegna er óþarfi að affrysta skápinn.
Allar hillurnar eru gerðar úr mjög sterku öryggisgleri sem er auðvelt að þrífa. Ef ílát með vökva veltur um koll, kemur hönnunin á hillunum í veg fyrir að það sullist niður á næstu hillur fyrir neðan.
Með sleðastýringunni geturðu stillt rakastigið í hyperFresh plús skúffunni miðað við innihaldið. Þannig er fullkomið rakastig tryggt sem varðveitir bragð, vítamín og næringarefni matvælana lengur.
Tryggir allt að tvisvar sinnum lengri endingu matvælanna.
Aflangir LED-ljósgjafar varpa þægilegri birtu á innihald kæliskápsins.
Þrýstu á hraðkælingarhnappinn („superCooling“) til að koma hitastiginu hratt niður í +2 °C. Gagnast vel þegar halda á mat sem er inni í skápnum kældum þegar ókældum mat er komið fyrir í skápnum.
Þrýstu á hraðfrystingarhnappinn („superFreezing“) til að koma hitastiginu hratt niður í -30 °C. Gagnast vel þegar halda á mat sem er inni í skápnum frosnum þegar ókældum mat er komið fyrir í skápnum.