Uppþvottavél alklæðanleg,Siemens iQ300, varioHinge
Hærri gerð, VarioHinge (XXL).
Orkuflokkur B.
Raforkunotkun miðað við Eco kerfi: 65 kwst. (100 þvottar).
Vatnsnotkun miðað við Eco kerfi: 9,0 lítrar á hvern þvott.
14 manna.
Hljóð: 42 dB.
Home Connect: Wi-Fi.
Sex uppþvottakerfi: Öflugt 70° C, sjálfvirkt kerfi 45 - 65° C, Eco, hraðkerfi 65° C, hraðkerfi 45° C og eftirlætiskerfi.
Fjögur sérkerfi: Home Connect (Wi-Fi), kraftþvottur á neðri grind, hálf vél og tímastytting þvottakerfa.
Forskolun.
Sérkerfi til að hreinsa vélina.
Tímaseinkun: 1 til 24 klst.
Hnífaparaskúffa.
Hæðarstillanleg efri grind.
Vinnsluljós lýsir í hliðum. („sideLight“).
Hurð opnast eftir þvott.
„openAssist“: Hurðin opnast með léttri snertingu.
Sérstakt hólf fyrir þvottatöflur.
Rack Stopper kemur í veg fyrir að neðri grind renni of langt fram.
Skynjarar: Vatnsskynjari sem mælir óhreinindastig vatnsins („aquaSensor“) og magnskynjari.
iQdrive: Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor.
Mál (h x b x d): 865 x 598 x 550 mm.
Innbyggingarmál (h x b x d): 865 - 925 x 600 x 550 mm.
aquaStop kemur í veg fyrir vatnstjón, bæði af völdum leka í vélinni og leka frá slöngu sem tengist vélinni. Öryggið er tryggt allan endingartíma vélarinnar.
Þvottatöflur leysast hratt og örugglega upp í hólfinu. Vélin nýtir sér úðarakerfið til að dreifa jafnt úr þvottaefninu og tryggir þannig góðan þvott alls staðar í vélinni.
Þægileg hurðaropnun án handfanga með „openAssist“.
Með „openAssist“ þarftu aðeins að ýta létt á hurðarframhliðina til að opna hurðina á uppþvottavélinni.
Hæð efri grindarinnar má stilla á þrjá vegu, jafnvel þó að hún sé full af leirtaui. Þetta auðveldar manni að fylla og tæma vélina, sérstaklega þegar koma á fyrir pottum og pönnum.
Með nýrri hönnun og sérhönnuð hjól með stöðvunaraðgerð tryggja það að neðri grindin renni á öruggan hátt. Nú getur þú ekki dregið grindina of langt út.
Meðan þvottakerfið er í gangi þá lýsir blátt ljós í vinstri hlið hurðar uppþvottavélarinnar.
Hnífaparaskúffunni er komið fyrir efst í vélinni. Lögun hennar gerir ráð fyrir að í hana fari ekki eingöngu hnífapör heldur einnig espressóbollar og ýmis stærri eldhúsáhöld, t.d. skurðhnífar, spaðar og salatskeiðar.
Fyrir lága sökkla, þar sem sökkull getur verið allt að minnst 5 sm.
Með því að þrýsta á varioSpeed Plus-hnappinn má stytta þvottatímann um allt að 66%. Styttur tími birtist þá á skjá stjórnborðsins. Á hvorki við um forskolun né hraðkerfi.