Uppþvottavél, Siemens, síðustu eintök
Stál.
Orkuflokkur E.
Raforkunotkun miðað við Eco kerfi: 92 kwst. (100 þvottar).
Vatnsnotkun miðað við Eco kerfi: 9,5 lítrar á hvern þvott.
12 manna.
Hljóð: 46 dB.
Home Connect: Wi-Fi.
Sex uppþvottakerfi: Öflugt 70° C, sjálfvirkt kerfi 45 - 65° C, Eco, hraðkerfi 65° C (klukkustund), hraðkerfi 45° C og eftirlætiskerfi.
Fjögur sérkerfi: Home Connect (Wi-Fi), kraftþvottur á neðri grind, hálf vél og tímastytting þvottakerfa.
Forskolun.
Sérkerfi til að hreinsa vélina.
Tímaseinkun: 1 til 24 klst.
Hæðarstillanleg efri grind.
Sérstakt hólf fyrir þvottatöflur.
Skynjarar: Vatnsskynjari sem mælir óhreinindastig vatnsins („aquaSensor“) og magnskynjari.
iQdrive: Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor.
„aquaStop“-flæðivörn.
Mál (h x b x d): 81,5 x 59,8 x 57,3 sm.
Innbyggingarmál (h x b x d): 81,5 - 87,5 x 60 x 55 sm.
aquaStop kemur í veg fyrir vatnstjón, bæði af völdum leka í vélinni og leka frá slöngu sem tengist vélinni. Öryggið er tryggt allan endingartíma vélarinnar.
Þvottatöflur leysast hratt og örugglega upp í hólfinu. Vélin nýtir sér úðarakerfið til að dreifa jafnt úr þvottaefninu og tryggir þannig góðan þvott alls staðar í vélinni.
Hæð efri grindarinnar má stilla á þrjá vegu, jafnvel þó að hún sé full af leirtaui. Þetta auðveldar manni að fylla og tæma vélina, sérstaklega þegar koma á fyrir pottum og pönnum.
Með því að þrýsta á varioSpeed Plus-hnappinn má stytta þvottatímann um allt að 66%. Styttur tími birtist þá á skjá stjórnborðsins. Á hvorki við um forskolun né hraðkerfi.